Viðskipti innlent

Hlutfall snjalltækja í vefumferð 34 prósent

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Þeir Steinar Ingi Farestveit og Ólafur Örn Nielsen, stofnendur Form5, segja breytingar á vefumferð hafa áhrif á iðnaðinn í heild sinni.
Þeir Steinar Ingi Farestveit og Ólafur Örn Nielsen, stofnendur Form5, segja breytingar á vefumferð hafa áhrif á iðnaðinn í heild sinni. Vísir/GVA
Hlutfall snjalltækja í vefnotkun Íslendinga hefur um það bil tvöfaldast á einu ári. Ólafur Örn Nielsen, framkvæmdastjóri hjá Form5 vefhönnunarstúdíói, hefur tekið saman tölur frá helstu vefmiðlum landsins ásamt tölfræði frá Modernus sem heldur úti samræmdri vefmælingu yfir heildarnotkun.

„Þar kom í ljós að á vefmiðlum sem hafa breiða markhópaskírskotun er hlutfall snjalltækja um og yfir 25 prósent af allri umferð,“ segir Ólafur og nefnir sem dæmi Vísir.is, Mbl.is og Já.is. Síða eins og Fótbolti.net hefur rúmlega 30 prósenta hlutfall snjalltækja sem Ólafur segir væntanlega skýrast af markhópnum.

Samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus eiga snjalltæki að meðaltali 34 prósent í allri umferð. Á markaðsvefjum og vefjum sem höfða til yngri hópa hafa þeir séð snjalltækjahlutfall í kringum 40 prósent.

„Þróunin er komin lengst hjá samfélagsmiðlum, sem höfða jafnframt til yngri markhópa. Face­book sagði í ágúst í fyrra að 78 prósent notkunarinnar væru „mobile“ á móti 22% í „desktop“,“ segir Ólafur.

Ólafur segir að ef sama þróunin heldur áfram verði vefnotkun algengari í snjalltækjum heldur en hefðbundnum tölvum, það er fartölvum og borðtölvum, jafnvel á þessu ári og vefmiðlar sem selji auglýsingar þurfi að aðlaga auglýsingamódel sín þessum nýja veruleika.

„Það er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að vefir þeirra séu skalanlegir og aðlagi sig ólíkum skjástærðum og jafnframt að markaðssókn þeirra á netinu henti og sé miðuð að þessum breytta veruleika,“ segir Ólafur.

Hann segir þetta hafa ákveðna áherslu í för með sér fyrir vefiðnaðinn í heild sinni.

„Að skala vefina var áður valkostur en nú er mikilvægt að notendaupplifunin sé jafn góð fyrir allar skjástærðir,“ segir Ólafur að lokum.

Form5 er vefstúdíó sem hannar allt frá vefsíðum til snjallforrita. Starfsmenn fyrirtækisins eru fjórir og hafa þeir starfað fyrir fyrirtæki á borð við Össur, 66°Norður, Símann og Nikita.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×