Viðskipti innlent

Hagnaður Regins rúmir 2,4 milljarðar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.
Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.
Rekstrartekjur fasteignafélagsins Regins hf. námu 4.043 milljónum króna í fyrra og þar af námu leigutekjur 3.524 milljónum króna sem samsvarar 24% hækkun samanborið við árið 2012. Reginn birti ársreikning sinn í gær. Hagnaður félagsins nam 2.434 milljónum króna borið saman við rétt tæpar 2.600 milljónir árið 2012. Hagnaður svarar til 1,87 króna hagnaðar á hlut borið saman við 1,57 árið 2012.

Stjórnendur félagsins telja horfur í rekstri góðar og afkoman hafi verið í samræmi við áætlun félagsins en þó verður ekki greiddur út arður í ár.

Í lok árs 2013 átti Reginn 45 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 192 þúsund í árslok og þar af voru 172 þúsund útleigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins er um 98% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi.

Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

Í febrúar 2013 var gerð breyting á fjárfestingastefnu félagsins, lögð var frekari áhersla á sterkt eigið fé og skýra arðsemiskröfu. Í markmiðum félagsins er gert ráð fyrir að eignasafn félagsins allt að tvöfaldist á næstu fimm árum frá samþykkt fjárfestingastefnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×