Leikjavísir

Tölvuleikjamarkaðurinn þenst út

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Stúlka drepur tímann í iPad-spjaldtölvu sinni með tölvuleiknum Hay Day frá Supercell. Því er spáð að fartæki og netleikir saxi hratt á hlut einkatölva og leikjatölva á næstu misserum.
Stúlka drepur tímann í iPad-spjaldtölvu sinni með tölvuleiknum Hay Day frá Supercell. Því er spáð að fartæki og netleikir saxi hratt á hlut einkatölva og leikjatölva á næstu misserum. Vísir/AP
Veltutölur í tölvuleikjaiðnaði eru gífurlegar og virðist vöxtur í geiranum engan enda ætla að taka ef marka má spár.

Greiningarfyrirtækið Gartner gerði undir lok síðasta árs ráð fyrir að stærð tölvuleikjamarkaðarins, þar sem horft er til tölvuleikja af öllu tagi og á hvers kyns tækjum, næmi árið 2013 tæplega 93,3 milljörðum Bandaríkjadala.

Upphæðin samsvarar rúmum 10.576 milljörðum íslenskra króna. Fyrirtækið gerir í áætlun sinni ráð fyrir vexti upp á tæp 18,3 prósent á milli 2012 og 2013.

Tölvuleikir á fartækjum (snjallsímum, spjaldtölvum og viðlíka tækjum) eru svo sagðir sá geiri þar sem vöxtur er hvað hraðastur í leikjaiðnaði.

Fyrirtækið spáir svo áframhaldandi vexti þannig að markaðurinn fari í 101,6 milljarða dala á þessu ári (vaxi um 8,9 prósent í 11.521 milljarð króna) og vaxi svo um önnur 9,3 prósent milli 2014 og 2015.

"Tölvuleikir á netinu og í PC-tölvum verða vinsælir áfram en þeim geira eru þó skorður settar í stærð. Gartner býst við að hefðbundnum PC-tölvum verði ekki skipt út fyrir nýjar þegar kemur að endurnýjun hjá heimilum, heldur verði spjaldtölvur fremur fyrir valinu," segir í tilkynningu Gartner.

Þetta leiði til þess að leikjatölvur og leikir fyrir fartæki nái afgerandi forystu á "hefðbundna" tölvuleiki fyrir einkatölvur.

Samkvæmt gögnum Superdata Research, sem gefur út margvíslega tölfræði fyrir leikjaiðnaðinn, námu tekjur af stafrænum leikjum á Vesturlöndum 21,8 milljörðum dala á síðasta ári og jukust um 12 prósent á milli ára.

Í krónum eru tekjurnar tæpir 2.472 milljarðar króna. Tölvuleikjasala í Bandaríkjunum einum hafi numið 18 milljónum dala (2.041 milljarði króna), en þar af hafi 65,6 prósent farið fram á netinu með stafrænni afhendingu.

Candy Crush er einhver vinsælasti netleikur heims um þessar mundir. Framleiðandinn, King Digital Entertainment, undirbýr hlutafjárútboð þar sem safna á allt að 500 milljónum dala (56,7 milljörðum króna).Vísir/AP
Leikirnir sem mest voru sóttir í fartæki Apple á netinu í fyrra hafi svo verið Candy Crush Saga þegar horft er til ókeypis leikja og Minecraft þegar horft er til leikja sem greiða þarf fyrir.

Superdata Research spáir líka hnignun sértækra leikjatölva og bendir á að í fyrra hafi 51 prósent leikið sér í einkatölvum, 30 prósent í leikjatölvum, 14 prósent í fartækjum og fimm prósent í smærri leikjatölvum (GameBoy og þess háttar).

Í nýrri spá alþjóðlega greiningarfyrirtækisins IDC er því spáð að tekjur af tölvuleikjum fyrir einkatölvur (PC og Mac) haldi áfram að vaxa í heiminum og fari yfir 24 milljarða dala (yfir 2.721 milljarð króna) árið 2017.

Þar ráði miklu aukning í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu. Spár fjárfestingarbankans Digi-Capital, þar sem horft er til tölvuleikjamarkaðar í heild, eru svo enn bjartsýnni.

Þar er gert ráð fyrir að leikir á netinu og í fartæki nái yfirhöndinni með 60 prósenta hlutdeild árið 2017 og að tekjur af stafrænum leikjum fari um leið yfir 100 milljarða dala.

Eftir nokkru er að slægjast í þessari þróun því í krónum talið er kakan þá orðin tæplega 11.340 milljarðar króna að stærð.


Tengdar fréttir

Atvinnumenn í internettölvuleik

Aðalsteinn Óttarsson er þróunarstjóri hjá Riot Games sem gefur út nettengda fjölspilunar-tölvuleikinn League of Legends. Alls spila 67 milljónir leikinn á mánuði og til eru þeir sem hafa það að atvinnu að keppa í leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×