Viðskipti innlent

Gott að fara á eftirlaun á Íslandi

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Þættir eins og heilsa, efnisleg velferð, lífsgæði og fjármál voru sérstaklega skoðaðir.
Þættir eins og heilsa, efnisleg velferð, lífsgæði og fjármál voru sérstaklega skoðaðir. Vísir/Vilhelm
Ísland er í ellefta sæti á lista Business Insider yfir lönd þar sem best er að fara á eftirlaun.

Um Ísland segir í fréttinni að Íslendingar hafi sterka samfélagsvitund, en það skýrist mögulega vegna mannfæðar. Þá er þess getið að íslenskir stjórnmálamenn hafi leyft íslensku bönkunum að falla í efnahagshruninu árið 2008 og þar með hlíft íslenskum ríkisborgurum frá verstu afleiðingum þess.

Ísland fær einkunnina 8,5 í heilsu í frétt Business Insider, 6,0 í fjármálum, 8,5 í lífsgæðum og 8,3 í efnahagslegri velferð.

Evrópulönd eru ráðandi á listanum en uppgefin lönd eru 20 talsins. Natixis Global Asset Management og CoreData tóku listann saman og skoðuðu 150 lönd við gerð hans.

Þættir eins og heilsa, efnisleg velferð, lífsgæði og fjármál voru sérstaklega skoðaðir.

Listinn er svohljóðandi:

1. Sviss

2. Noregur

3. Austurríki

4. Svíþjóð

5. Ástralía

6. Danmörk

7. Þýskaland

8. Finnland

9. Nýja-Sjáland

10. Lúxemborg

11. Ísland

12. Belgía

13. Holland

14. Kanada

15. Frakkland

16. Tékkland

17. Suður-Kórea

18. Bretland

19. Bandaríkin

20. Ísrael






Fleiri fréttir

Sjá meira


×