Viðskipti innlent

Landsbankinn og Íbúðalánasjóður eiga 313 tómar íbúðir

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/Vilhelm
Landsbankinn átti 116 tómar íbúðir um áramótin, 76 eignir sem voru í útleigu og 52 sem eru á byggingastigi. Þetta kemur fram í svari til Spyr.is sem birt var í gær.

Tómar íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs voru 197 um síðustu mánaðarmót.

Því er ljóst að eignir sem standa tómar, skipa hundruðum.

Spyr.is bíður nú svara frá Arion banka og Íslandsbanka.

Í svari Landsbankans til Spyr.is segir að bankinn setji ekki íbúðir í söluferli fyrre n þær eru tómar og búið að yfirfara hvort þær eru tilbúnar til sölu.

Íbúðalánasjóður segist alls eiga 2.117 íbúðir, þar af 197 sem standa auðar. Strangar reglur gilda um frágang leiguíbúða sem sjóðurinn verður að uppfylla. Eignasvið Íbúðalánasjóðs má auk þess leggja að hámarki 2 m. kr. í að lagfæra íbúð fyrir leigumarkað. Kosti slík standsetning meira en því nemur fer viðkomandi íbúð í söluferli. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×