Byggingariðnaður tekur við sér Óli Kristján Ármannsson skrifar 27. febrúar 2014 09:28 Hugað að járnabindingum í nýbyggingu í smíðum. Umframframboð nýbygginga sem til varð eftir hrun er sagt horfið. Vísir/Daníel
Horfur eru á umtalsverðri aukningu umsvifa í byggingariðnaði á þessu ári. Bæði koma þar til áhrif af uppbyggingu í ferðaþjónustu og uppsöfnuð þörf fyrir húsnæði með því að gengið hefur á offramboðið á húsnæði eftir hrun. Eins er íbúðaverð nú yfir kostnaðarverði nýbygginga. "Fjárfestingar hafa reyndar verið vaxandi um nokkurn tíma," segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka. Í fyrra hafi samanburður milli ára verið örlítið skakkur, þar sem á árinu áður hafi töluverð kaup á skipum og flugvélum skekkt myndina. "En undirliggjandi fjárfesting í hagkerfinu var engu að síður vaxandi þá, þótt sá vöxtur hafi reyndar ekki verið hraður, um það bil fjögur prósent á milli ára." Spár Greiningar benda svo til áframhaldandi vaxtar fjárfestingar.Ingólfur H. Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka."Við spáum um það bil níu prósenta vexti í ár sem er dágott. Og í nýbirtri spá Seðlabankans er gert ráð fyrir 5,4 prósenta heildarvexti fjárfestingar. Þannig að eitthvað er að gerast þarna." Ingólfur bendir þó um leið á að fjárfestingarstig í hagkerfinu sé enn þá afar lágt, bæði í sögulegu samhengi og í samanburði við það sem gerist í öðrum iðnríkjum og er talið þurfa til að viðhalda hagvexti til lengri tíma. Íbúðabyggingar séu þó hluti þess sem farið hafi af stað aftur í hagkerfinu. "Íbúðaverð er almennt yfir byggingarkostnaði og kaupmáttur er vaxandi." Þá segir hann aðra þætti líka hafa ýtt undir fjárfestingu í íbúðum. "Það umframframboð af nýbyggingum sem til varð eftir hrunið er nú horfið að mestu." Þá séu verkefni á borð við hótelbyggingar vegna aukinna umsvifa í ferðaþjónustu víða um landið. Ingólfur tekur undir að orðræða um að "ekkert sé að gerast og allt sé steindautt í framkvæmdum" fari líkast til hverfandi. "Ef maður tekur stærri myndina þá er þessi slaki sem hefur verið í hagkerfinu frá hruni að hverfa á næsta ári." Seðlabankinn spái meira að segja smáþenslu á næsta ári og enn meiri á árinu 2016. "Við sjáum því lúxusvandamálin aftur og menn þurfa að fara að hækka hér stýrivexti og hafa afgang í opinberum fjármálum. En fjárfestingarstigið er samt enn þá lágt og verið að fást við ýmis önnur vandamál, sérstaklega tengd afnámi fjármagnshafta."
Mest lesið Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira