Viðskipti innlent

Byggingariðnaður tekur við sér

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Hugað að járnabindingum í nýbyggingu í smíðum. Umframframboð nýbygginga sem til varð eftir hrun er sagt horfið.
Hugað að járnabindingum í nýbyggingu í smíðum. Umframframboð nýbygginga sem til varð eftir hrun er sagt horfið. Vísir/Daníel
Horfur eru á umtalsverðri aukningu umsvifa í byggingariðnaði á þessu ári. Bæði koma þar til áhrif af uppbyggingu í ferðaþjónustu og uppsöfnuð þörf fyrir húsnæði með því að gengið hefur á offramboðið á húsnæði eftir hrun. Eins er íbúðaverð nú yfir kostnaðarverði nýbygginga.

"Fjárfestingar hafa reyndar verið vaxandi um nokkurn tíma," segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka. Í fyrra hafi samanburður milli ára verið örlítið skakkur, þar sem á árinu áður hafi töluverð kaup á skipum og flugvélum skekkt myndina. 



"En undirliggjandi fjárfesting í hagkerfinu var engu að síður vaxandi þá, þótt sá vöxtur hafi reyndar ekki verið hraður, um það bil fjögur prósent á milli ára."

Spár Greiningar benda svo til áframhaldandi vaxtar fjárfestingar.

Ingólfur H. Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka.
"Við spáum um það bil níu prósenta vexti í ár sem er dágott. Og í nýbirtri spá Seðlabankans er gert ráð fyrir 5,4 prósenta heildarvexti fjárfestingar. Þannig að eitthvað er að gerast þarna."



Ingólfur bendir þó um leið á að fjárfestingarstig í hagkerfinu sé enn þá afar lágt, bæði í sögulegu samhengi og í samanburði við það sem gerist í öðrum iðnríkjum og er talið þurfa til að viðhalda hagvexti til lengri tíma.

Íbúðabyggingar séu þó hluti þess sem farið hafi af stað aftur í hagkerfinu.

"Íbúðaverð er almennt yfir byggingarkostnaði og kaupmáttur er vaxandi." Þá segir hann aðra þætti líka hafa ýtt undir fjárfestingu í íbúðum. "Það umframframboð af nýbyggingum sem til varð eftir hrunið er nú horfið að mestu."



Þá séu verkefni á borð við hótelbyggingar vegna aukinna umsvifa í ferðaþjónustu víða um landið.

Ingólfur tekur undir að orðræða um að "ekkert sé að gerast og allt sé steindautt í framkvæmdum" fari líkast til hverfandi.

"Ef maður tekur stærri myndina þá er þessi slaki sem hefur verið í hagkerfinu frá hruni að hverfa á næsta ári." Seðlabankinn spái meira að segja smáþenslu á næsta ári og enn meiri á árinu 2016.

"Við sjáum því lúxusvandamálin aftur og menn þurfa að fara að hækka hér stýrivexti og hafa afgang í opinberum fjármálum. En fjárfestingarstigið er samt enn þá lágt og verið að fást við ýmis önnur vandamál, sérstaklega tengd afnámi fjármagnshafta."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×