Viðskipti innlent

Vodafone hækkaði um 4,67 prósent

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Daníel
Hlutabréf Vodafone hækkuðu um 4,67 prósent í verði í Kauphöllinni í dag og endaði í 30,25 krónum á hlut. Velta með hlutabréf fyrirtækisins var 329 milljónir króna. Öll hlutabréf hækkuðu í verði í dag, nema tvö sem stóðu í stað.

Vodafone hækkaði mest, en þar á eftir hækkaði Eimskip um 2,06 prósent. TM hækkaði um 1,86 prósent, Marel um 1,80 prósent, Icelandair um 1,62 prósent, Hagar um 0,86 prósent, VÍS um 0,75 prósent og Reginn um 0,61 prósent.

N1 og Össur stóðu í stað.

Heildarvelta dagsins í Kauphöllinni var 1.554 milljónir króna og var mest velta með hlutabréf Icelandair eða um 377 milljónir. Veltan með Vodafone var næst hæst. Velta með hlutabréf í N1 var 252 milljónir, TM 148 milljónir, Hagar 101 milljón, Eimskip 86 milljónir, Reginn 83 milljónir og VÍS 64 milljónir.

Úrvalsvísitalan hækkaði 1,56 prósent og var 1.221,58 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×