„Þetta uppgjör markar ákveðin þáttaskil hjá samstæðu Nýherja“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. febrúar 2014 17:29 mynd/aðsend
Nýherji, Applicon og TM Software skiluðu öll jákvæðri afkomu árið 2013 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Nýherja. Fram kemur að rekstur innlendra dótturfélaga hafi gengið vel og horfur framundan mjög góðar. Rekstur Nýherjasamstæðunnar á erlendum vettvangi var hins vegar þungur á síðasta ári, einkum hjá Applicon A/S í Danmörku, sem skýrir að langstærstum hluta tap samstæðunnar á árinu. Viðvarandi tap hefur verið af rekstri Applicon A/S undanfarin ár og af þeim sökum hefur viðskiptavild vegna félagsins verið skrifuð niður um 1.100 milljónum króna á árinu. „Applicon A/S er nú í söluferli og Dansupport A/S í Danmörku var selt í lok árs, en lítil sem engin samlegð hefur verið milli reksturs í Danmörku og á Íslandi. Báðar þessar aðgerðir eru í takti við nýja stefnu Nýherjasamstæðunnar og aðgerðaáætlun, þar sem megináhersla er lögð á að einfalda starfsemi, bæta afkomu og styrkja stöðu félagsins," segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja hf. „Þetta uppgjör markar ákveðin þáttaskil hjá samstæðu Nýherja. Við horfum nú til tækifæranna sem felast í því að nýta okkur sterka stöðu á markaði og mjög samkeppnishæft vöru- og lausnaframboð til að þjónusta stóran hóp öflugra viðskiptavina. Að sama skapi væntum við áframhaldandi vaxtar erlendra tekna vegna sölu hugbúnaðarlausna sem þróaðar eru af dótturfélögum Nýherja, einkum TM Software," segir Finnur.
Mest lesið „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Viðskipti erlent Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Neytendur Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Viðskipti innlent Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Viðskipti innlent Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Sjá meira