Viðskipti innlent

Segir að mikilvægt sé að eyða óvissu sem gæti haft áhrif á traust bankans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. visir/gva
Mikilvægt er að trúverðugleiki peningastefnu Seðlabankans verði ekki fyrir hnekki vegna breytinga á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í viðtali við MNI Monday.

Már vísar þar til orða forsætisráðherra um að fjölga kannski seðlabankastjórum í þrjá.

Segir hann enn fremur að trúverðugleikinn sé mikilvægur vegna mögulegra neikvæðra áhrifa á verðbólguvæntingar. Már var staddur á fundi  seðlabankastjóra heimsins í Ástralíu þegar viðtalið var tekið.

Már var spurður út í þá ákvörðun stjórnvalda að auglýsa stöðu seðlabankastjóra.

„Ég útiloka ekki að sækja um starfið og geri ekki athugasemd við þann rétt stjórnvalda að breyta núverandi stjórnkerfi Seðlabanka Íslands,“ sagði Már en hann benti einnig á að mikilvægt væri að eyða óvissu sem gæti haft áhrif á traust bankans og þá peningastefnu sem hann rekur.

„Ef aðilar á fjármálamarkaði skynja að breytingar séu í vændum á verðbólgumarkmiði bankans þá gæti það haft áhrif á verðbólguvæntingar og væntingar markaðarins. Slíkt mun alltaf hafa áhrif á peningastefnuna.“

Már talar um í viðtalinu að vextir gætu hugsanlega verið lækkaðir á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×