Bretar og Hollendingar krefjast allt að þúsund milljarða vegna Icesave Kjartan Atli Kjartansson skrifar 10. febrúar 2014 13:35
Hollenski seðlabankinn DNB og breski innstæðusjóðurinn FSCS, hafa stefnt Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi fyrir Hérðasdóm Reykjavíkur í tengslum við Icesave deiluna. DNB og FSCS greiddu innstæðueigendum í Hollandi og Bretlandi bætur við fall Landsbanka Íslands. DNB og FSSC krefjast þess að þeim verði greiddar samtals 555,7 milljarðar króna. Breski innstæðusjóðurinn fer fram á 452,1 milljarð og hollenski seðlabankinn krefst þess að fá 103,6 milljarða í sinni hlut. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta (TIF). Þar kemur fram að ítrustu kröfur DNB og FSCS séu, með vöxtum og kostnaði, um 1000 milljarðar. Þar segir ennfremur: „Fljótlega eftir fall íslenska fjármálakerfisins eða þann 27. október 2008 stofnaðist greiðsluskylda á TIF gagnvart innistæðueigendum LBI hf [Landsbanka Íslands]. Frá Árinu 2008 hafa staðið yfir viðræður milli íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda og viðkomandi tryggingarsjóða um ábyrgð á Icesave innlánum. Samningar milli þjóðanna voru felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu í tvígang hér á landi. Þegar ljóst varð að málið yrði ekki leyst með samningum ákvað TIF að hefja útgreiðslu fjármuna í samræmi við lög og eftir því sem efni stóðu til. Ákvörðun TIF var samþykkt á stjórnarfundi 8. september 2011 og gafst kröfuhöfum kostur á að tjá sig um ákvörðinina og þau skilyrði sem hún fóilk í sér. DNB og FSCS mótmæltu þeim skilyrðum sem fram koma í ákvörðun sjóðsins og höfnuðu greiðslu á þeim grundvelli sem TIF bauð fram. Eftir það hafa aðilar skipst á bréfum og átt nokkra fundi sem ekki hafa skilað árangri.“ Einnig segir: „Nái kröfur þeirra fram að ganga er ljóst að TIF verði gert erfitt fyrir að sinna þeirri frumskyldu sinni að tryggja innistæður á Íslandi til framtíðar. Hafa ber í huga að bæði DNB og FSCS greiddu innistæðueigendum út fjármuni í sínum löndum að eigin frumkvæði og án beðni eða samþykkis TIF.“
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira