Mikill sparnaður með rafrænum reikningum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 10. febrúar 2014 15:32 Ætla má að um 500 milljónir geti sparast með notkun rafrænna reikninga hjá ríkinu. Vísir/Valli
Ætla má að um 500 milljónir geti sparast með notkun rafrænna reikninga hjá ríkinu, en frá og með 1. janúar 2015 mun ríkið einungis taka við rafrænum reikningum. Fjármálaráðuneytið greinir frá þessu. Bjarni Benediktsson kynnti í dag fyrir ríkisstjórn niðurstöður verkefnis sem unnið hefur verið skipulega að síðustu ár og gerir pappírsreikninga óþarfa. Þeir sem senda ríkisaðilum reikning frá og með næstu áramótum vegna seldrar vöru eða þjónustu munu eingöngu geta gert það rafrænt. Ennfremur er unnið að því að reikningar frá ríkisstofnunum fyrir vöru og þjónustu verði rafrænir. Tekið er fram að þetta mun ekki gilda um skatta eða lögbundin gjöld. Árlega berast ríkinu yfr 500 þúsund reikningar og í dag eru hátt í 30% þeirra rafrænir. Reynsla annarra þjóða sýnir að með rafrænum reikningum sparast að minnsta kosti 1.000 krónur fyrir hvern reikning. Mörg fyrirtæki hafa þegar sett sér markmið um að allir reikningar þeirra verði rafrænir og ljóst að atvinnulífið nýtur hagræðis af verkefninu á við ríkið.Hagræðing Ráðuneytið segir hagræði af notkun rafrænna reikninga felast meðal annars í sparnaði í móttöku og úrvinnslu þeirra, svo sem með sjálfvirkri bókun, rafrænum samþykktarferlum og greiðslustýringu. Afgreiðsla verði hraðari og öruggari og sendingar- og geymslukostnaður pappírs minnkar. Þá lækkar pappírskostnaður og ferlið er umhverfisvænt. Við undirbúning verkefnisins var hugað að ýmsum þáttum, svo sem kynningu þess gagnvart sveitarfélögum og atvinnulífinu. Sérstaklega hafi verið hugað að hagsmunum lítilla fyrirtækja og einstaklinga og tryggt að slíkir aðilar geti nýtt sér tæknilausnir til hagræðingar og einnig að krafa ríkisins valdi þeim ekki óþarfa kostnaði. Áhersla var á að tæknileg viðmið sem byggt er á henti ekki aðeins þörfum ríkisins heldur eigi einnig við í viðskiptum milli aðila á markaði, jafn innanlands sem til Evrópu. Ráðuneytið segir ljóst að í framhaldi af frumkvæði ríkisins munu birgjar í vaxandi mæli nýta rafræna reikninga fyrir öll sín viðskipti. Nú þegar hafa lausnir verið byggðar inn í velflest viðskiptakerfi sem eru á markaði hér á landi.Góð reynsla Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að aðlaga kerfi og verklag hjá stofnunum til að geta tekið á móti rafrænum reikningum. Fjármálaráðuneytið segir góða reynslu þegar komna af fyrirkomulaginu hjá stofnunum sem hafa tekið það upp og ljóst að verkefnið skili umtalsverðri hagræðingu í rekstri stofnana. Þannig hafi notkun rafrænna reikninga reynst vel hjá Landspítalanum og meðal annars haft í för með sér sparnað í starfsmannahaldi og lægri vaxtakostnað, sem nemur tugum milljóna á ári.
Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira