Viðskipti innlent

Framtakssjóður selur fyrir 6,6 milljarða í Icelandair

Jóhannes Stefánsson skrifar
Framtakssjóður er í eigu lífeyrissjóðanna.
Framtakssjóður er í eigu lífeyrissjóðanna.
Framtakssjóður Íslands hefur selt alla hluti sína í Icelandair, að andvirði um 6,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Icelandair birti í Kauphöllinni vegna flöggunarskyldu sinnar.

Um er að ræða 350.539.559 hluti, en gengi bréfa Icelandair var 18,9 á hlut í lok dags.

Framtakssjóður átti 7,01% hluta Icelandair og kaupandinn er ekki tilgreindur í tilkynningunni.

Framtakssjóður er í eigu lífeyrissjóðanna, sem hafa ávaxtað fé sitt verulega í gegnum sjóðinn með bréfum Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×