Lánshæfismat ríkissjóðs hefur hækkað Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2014 15:01 Vísir/Pjetur „
Með hækkandi sól hafa borist jákvæðar fréttir af lánshæfismati ríkissjóðs en síðastliðinn föstudag staðfesti Fitch Ratings lánshæfiseinkunnirnar BBB og segir horfurnar stöðugar.“ Þetta kemur fram í frétt frá Greiningardeild Arion banka. Þá breytti Standard & Poor´s nýlega horfum úr neikvæðum í stöðugar. S&P rökstyður ákvörðun sína með því að dregið hefur úr áhættu í ríkisfjármálum. Þar er áætlað að heildarkostnaður ríkissjóðs vegna skuldaleiðréttingaraðgerða verði um sex prósent af vergri landsframleiðslu á næstu fjórum árum. „Bætt lánshæfismat eru jákvæð tíðindi fyrir ríkissjóð og eru þá öll matsfyrirtækin með stöðugar horfur á langtímaskuldbindingar ríkissjóðs.“ Mat Fitch hefur farið hækkandi jafnt og þétt frá vori 2011. Moody´s og S&P hafa verið varfærnari með að hækka matið. „Síðustu ár hafa litast mikið af Icesave málinu og hafði það á sínum tíma áhrif á mat fyrirtækjanna. Jafnframt færði S&P horfurnar í neikvæðar sl. sumar þegar sérfræðingahópur um skuldavanda heimilanna var skipaður þar sem áhyggjur af ríkisfjármálum jukust, en nú liggur fyrir hver útfærslan verður á höfustólslækkun húsnæðislána og má telja það jákvætt skref að lánshæfismatsfyrirtækið hækki horfur í stöðugar í kjölfarið.“ Þá hefur áhættuálag á skuldbindingar ríkissjóðs hefur farið lækkandi. „Segja má að áhættuálag á erlendum skuldbindingum ríkissjóðs hafi þróast nokkurn veginn í takt við lánshæfismat ríkissjóðs, allavega ef litið er til hækkana á lánshæfismati Fitch, en áhættuálagið mælist sem vaxtamunur á íslensku og bandarísku ríkisskuldabréfi með gjalddaga 2016 og 2022.“ Álagið fór lækkandi frá fyrri hluta ársins 2012 eða stuttu eftir að Fitch hækkaði lánshæfismat sitt á langtímaskuldbindingar ríkissjóðs í BBB- eða úr ruslflokk í fjárfestingarflokk. „Eftir að útfærsla stjórnvalda á skuldaniðurfellingunni lá fyrir og ljóst var að áhrif á afkomu ríkissjóð yrði hverfandi eða engin má segja að áhættuálagið hafi byrjað að lækka aftur.“ Horfur í ríkisfjármálum og skýr ríkisfjármálaáætlun stjórnvalda til lengri tíma skiptir sköpum fyrir lánshæfimat ríkissjóðs og jafnframt aðgengi að fjármálamörkuðum.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent