Viðskipti innlent

Forstöðumenn vilja hærri laun og kæra kjararáð

Magnús Guðmundsson er formaður FFR
Magnús Guðmundsson er formaður FFR
Félagsmenn Félags forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) ákváðu einróma á fundi sínum í gær að höfða mál á hendur kjararáði vegna vangoldinna launahækkana. Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins í dag.

Forsaga málsins er sú að í kjölfar falls bankakerfsins árið 2008 tóku félagsmenn á sig tímabundna launalækkun til tveggja ára og átti hún að ganga að fullu til baka þann 1. desember 2010. Kjararáð dró hækkunina hins vegar í 10 mánuði, eða fram í október 2011. FFR telur að með drættinum hafi kjararáð brotið lög og hefur því ákveðið að leita réttar síns fyrir dómstólum. FFR telur að kjararáð hafi á þeim tíma verið skylt að endurskoða laun félagsmanna sambandsins til samræmis við kjör annarra sem gegna sambærilegum störfum í þjóðfélaginu.

Í máli sínu við Morgunblaðið segir Magnús Guðmundsson, formaður FFR, mikla samstöðu ríkja um málshöfðunina innan raða félagsins og að félagsmenn telji sig hafa orðið fyrir 25% kjaraskerðingu á umræddu tímabili. FFR leitaði á náðir umboðsmanns Alþingis sem fyrirskipaði kjararáði að taka upp mál félagsins að nýju sem kjararáð vísaði frá síðastliðið sumar.

Í ályktun sem FFR samdi á félagsfundi í gær á Grand Hóteli í Reykjavík kemur fram að félagsmenn telji fullreynt að kjararáð eigi frumkvæði að nauðsynlegri leiðréttingu á starfskjörum forstöðumannanna. „Starfsemi og árangur þeirra stofnana sem félagsmenn í FFR veita forstöðu er ekki síst undir því kominn að farið sé að lögum og reglum,“ segir í ályktuninni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×