Forstjóri Símans hættur Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 12. febrúar 2014 09:45 Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans og Orri Hauksson forstjóri Skipta.
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans er hættur hjá félaginu. Orri Hauksson, forstjóri Skipta, mun stýra félaginu.Skipti hf. og Síminn hf. sameinast Viðamiklar breytingar á rekstri félaganna verða gerðar þar sem reksturinn verður sameinaður undir nafni Símans hf. Míla ehf. og Skjámiðlar, sem áður voru í eigu Skipta verða nú að fullu í eigu hins sameinaða félags, Símans hf. Sameining Skipta hf. og Símans hf. er gerð með fyrirvara um endanlegt samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu frá Skiptum er haft eftir Orra þar sem hann segir: „Með sameiningu næst fram hagræðing í rekstrinum. Stefnt er að skráningu hlutabréfa sameinaðs félags í kauphöll á komandi misserum og við erum þess fullviss að breytt skipulag starfseminnar henti vel skráðu félagi. Fjarskiptamarkaðurinn er í örri þróun og það er mikilvægt að fyrirtækin séu í stakk búin til að bregðast hratt við breytingum. Reksturinn verður nú einfaldaður til að geta betur mætt þörfum viðskiptavina á hagkvæman hátt. Ég vil nota tækifærið og þakka Sævari Frey Þráinssyni fyrir framúrskarandi störf fyrir Símann. Hann hefur leitt fyrirtækið í gegnum erfiða tíma og skilað rekstrarárangri sem lagði grunninn að fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta á seinasta ári.“ Sævar kveðst stoltur af þeim árangri sem náðst hefur í rekstri Símans. „... vil þakka frábæru samstarfsfólki fyrir samstarfið. Ekki síður er ég stoltur af þeirri samheldni sem starfsfólk hefur sýnt á undanförnum árum sem gerir Símann að þeim einstaka vinnustað sem hann er. Það er nauðsynlegt að einfalda skipulag starfseminnar og aðlaga fyrirtækið að breyttum aðstæðum. Ég óska stjórnendum og starfsfólki alls góðs í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru,“ er haft eftir Sævari í tilkynningunni. Stjórnarformaður Skipta sendi eftirfarandi póst á starfsmenn Símans í morgun:Kæra starfsfólk Skipta og Símans, Með þessum pósti vil ég upplýsa ykkur um að stjórnir Skipta hf. og Símans hf. hafa ákveðið að gera viðamiklar breytingar á rekstri félaganna og að reksturinn verði sameinaður undir nafni Símans hf. Míla ehf. og Skjámiðlar, sem áður voru í eigu Skipta, verða nú að fullu í eigu hins sameinaða félags, Símans hf. Við sameininguna verður til öflugt rekstrarfélag með starfsemi í fjarskiptum, upplýsingatækni og afþreyingu. Með þessari breytingu næst fram aukin hagkvæmni í rekstrinum, tvíverknaði er eytt og stjórnendum er fækkað. Þá verða boðleiðir styttri og skýr rekstrarleg ábyrgð er nú á einum stað. Við skipulagsbreytinguna verður sjálfstæði Mílu enn aukið sem rekstraraðili grunnfjarskiptakerfis og tryggt að markmið sáttar sem Skipti hf., Síminn hf. og Míla ehf. gerðu við Samkeppniseftirlitið í mars 2013 nái fram að ganga.Stjórnin hefur farið þess á leit við Orra Hauksson, forstjóra Skipta, að hann stýri sameinuðu félagi og hefur hann samþykkt það. Ég vil nota tækifærið til að þakka Sævari Frey Þráinssyni, fráfarandi forstjóra Símans, kærlega fyrir framúrskarandi störf í þágu Símans um langa hríð. Stefnt er að skráningu hlutabréfa sameinaðs félags í kauphöll á komandi misserum og við erum þess fullviss að breytt skipulag starfseminnar henti vel skráðu félagi. Sameining Skipta hf. og Símans hf. er gerð með fyrirvara um endanlegt samþykki Samkeppniseftirlitsins. Starfsmannafundur verður haldinn klukkan 11:00 þar sem Orri mun fara nánar yfir þær breytingar sem verða á skipuriti Símans. Með bestu kveðjum, Sigríður Hrólfsdóttir, formaður stjórnar Skipta hf.
Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Fleiri fréttir Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Sjá meira