„Hitamyndavélarnar eru galdratæki“ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 12. febrúar 2014 11:20 Hitamyndavélar Ísmar eru nýttar í auknum mæli á Íslandi. Vísir/Valli „
Hitamyndavélarnar eru galdratæki, þær nema innrauðar bylgjulengdir sem eru í rauninni bara útgeislun og þannig er hægt að sjá ýmsa hluti sem ekki sjást með berum augum,“ segir Sæmundur Sævarsson, söluráðgjafi hjá Ísmar. Ísmar hefur selt yfir 100 hitamyndavélar sem vekja sífellt meiri áhuga hérlendis og geta umbylt iðnaði ýmiss konar. „Í raun og veru er hægt að nota þessa tækni í hvað sem er þar sem skiptir einhverju máli að nema mun á hitastigi. Á vélunum er skynjunarnæmið aðeins 0,05 gráður á Celsius,“ segir Sæmundur. „Hér hefur þetta mikið verið notað í kringum heilsufar húsa, til að meta kuldabrýr eða ákjósanleg skilyrði fyrir myglu og gró eða slíkan óþverra,“ segir Sæmundur og bætir við að útgerðar- og sjóiðnaðurinn hafi einnig nýtt sér þessa tækni með auknum hætti. „Þetta hefur töluvert verið sett um borð í skip og báta til að fylgjast með sjólagi og eins fyrir öryggisþáttinn ef það skyldi verða eitthvert óhapp, til að mynda ef maður færi fyrir borð og þetta er sama tækni og Landhelgisgæslan er að nota hjá sér,“ segir Sæmundur. Sæmundur segir möguleikana í raun óendanlega og að vitneskja um tækifærin sem fylgja þessari tækni sé að aukast. „Fyrstu árin voru erfið, þá vorum við að kynna þetta fyrir markaðnum en nú eru menn farnir að prófa sig áfram og nota þetta í mun fleira en það sem þeir sáu fyrir í upphafi.“Hitamyndavélarnar geta numið 0,05 gráðu breytingar á hita.Vísir/ValliSem dæmi um það sem tæknin nýtist í og kemur á óvart eru lækningar eða líkaminn og segir Sæmundur að læknar geti notað vélarnar til að nema blóðflæði, til dæmis til að sjá hvort blætt hefur inn á vöðva með því að meta óeðlilega hitamyndun sem verður í kringum meiðsli. „Erlendis hafa þeir einnig verið að nota vélarnar í hrossarækt þar sem þeir skoða blóðflæði niður í hófa á hrossunum til að sjá hvort járningin sé rétt,“ segir Sæmundur. Hitamyndavélarnar sem Ísmar selur geta kostað á bilinu 250 þúsund upp í sex milljónir og fer það þá eftir upplausn og skynjunarnæmi vélanna ásamt því hvernig þær eru búnar í tengslum við hugbúnað til að lesa úr gögnum sem þær afla. Vélarnar eru framleiddar í Svíþjóð og Eistlandi en félagið sem Ísmar kaupir þær af er amerískt. Sæmundur segir það aðallega vera fyrirtæki sem kaupa búnaðinn en auk þess einyrkja, til dæmis pípulagningameistara, ásamt verkfræðiskrifstofum, útgerðarfélögum og í raun öllum stóriðnaðiðnum.
Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Sjá meira