Samið um orkuflutninga fyrir kísilver á Bakka Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2014 16:16 Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, Peter Wenzel, aðstoðarforstjóri þróunarsviðs PCC SE og Dietmar Kessler, fulltrúi framkvæmdastjórnar PCC SE. Aðsend mynd
Landsnet hefur undirritað samkomulag um raforkuflutninga við PCC BakkiSilicon hf., dótturfyrirtæki þýska félagsins PCC SE, sem hyggst byggja kísilver á Bakka við Húsavík. Um er að ræða fyrsta samninginn sem Landsnet gerir vegna fyrirhugaðrar iðnaðaruppbyggingar á Bakka. Samkomulagið miðast við að starfsemin hefjist árið 2017 og aflþörf fyrsta áfanga verksmiðjunnar er 52 megawött. Áætlaður kostnaður við tengingu iðnaðarsvæðisins á Bakka við meginflutningskerfi Landsnets með 220 kílóvoltaháspennulínu hljóðar upp á tæpa fimm milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Áætluð framleiðslugeta kísilversins er 32 þúsund tonn af kísilmálmi á ári, með möguleika á stækkun upp í 64 þúsund. „Samkomulagið miðast við að orkuafhending hefjist í mars 2017 og starfsemin verði komin á fullt skrið þremur mánuðum síðar. Samkvæmt því skal Landsnet tryggja orkuflutning til kísilversins frá meginflutningskerfinu og þeim framleiðslueiningum sem munu tryggja verinu raforku. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist strax á næsta ári,“ segir í tilkynningunni. „Undirbúningur og hönnun fer á fullan skrið hjá okkur á þessu ári og áætlað að framkvæmdir hefjast strax á næsta ári. Það sem gerir okkur kleift að hefja framkvæmdir svo skjótt er að nauðsynlegar skipulagsbreytingar og umhverfismat framkvæmda hefur þegar farið fram í tengslum við fyrri áform um uppbyggingu á Bakka,“ segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets. „Undirritun þessa samkomulags er mikilvægur áfangi fyrir verkefnið og fjármögnun þess og færir okkur nær því markmiði okkar að reisa kísilver á Bakka. Áætlað er að verið skapi um 125 framtíðarstörf á þessu svæði, að ótöldum þeim störfum sem verða til vegna kaupa á þjónustu og orku,“ segir Peter Wenzel, aðstoðarforstjóri þróunarsviðs PCC.
Mest lesið Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Neytendur eigi meira inni Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Sjá meira