Viðskipti innlent

Ríkið hafði betur gegn Einari

Baldvin Þormóðsson skrifar
Einar reyndi að komast hjá því að borga fjármagnstekjuskatt.
Einar reyndi að komast hjá því að borga fjármagnstekjuskatt. visir/gva
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu Einars Sveinssonar og konu hans Birnu Hrólfsdóttur í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hjónin stefndu ríkinu og kröfðust þess að úrskurður yfirskattanefndar yrði felldur úr gildi.

Einar og kona hans stefndu ríkisstjórn Íslands vegna fjármagnstekjuskatts sem skattstjóri lagði á Einar árið 2009 að andvirði 119 milljóna króna. Vísir greindi frá málinu þegar aðalmeðferð þess fór fram.

Tekjuskatturinn var tilkominn vegna hagnaðar Einars á sölu hlutabréfa í Glitnisbanka árið 2007.

Héraðsdómur sýknaði ríkið af kröfum stefnenda, og dæmdi þau til að greiða ríkinu 1,6 milljónir í málskostnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×