Viðskipti innlent

Dótturfyrirtæki Nýherja vekur athygli í Svíþjóð

Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni
Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni
Dótturfyrirtæki Nýherja, upplýsingatæknifyrirtækið Applicon, hefur vakið athygli í Svíþjóð vegna kerfislausna sinna fyrir sænska bankann Landshypotek.

Verkefnið sem Applicon vann fyrir bankann fólst í innleiðingu nýrra kerfa frá þýska hugbúnaðarfyrirtækinu SAP, sem sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum fyrir fjármálageirann, ásamt ýmsum sérlausnum frá íslenska fyrirtækinu er snúa meðal annars að greiðslumiðlun, tengingu við áhættustýringu og netbankalausnum.

„Við höfum gengið í gegnum heildstæð hjarta og lungnaskipti hjá banknum. Nú er bankinn vel staddur til að mæta áformum um vöxt. Nú getum við sótt fram með aukinni þjónustu og eflt samband okkar við viðskiptavini“ segir Kjell Hedman bankastjóri Landshypotek í fréttatilkynningu.

Ingimar Bjarnason, framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi, segir þetta verkefni mikilvægan áfanga fyrir Applicon. „Þessi niðurstaða og umfjöllun um verkefnið er Applicon mjög verðmætt þar sem fjöldi banka á Norðurlöndum eru með gömul kerfi í rekstri og ljóst að þar liggi mikil tækifæri fyrir íslenska þekkingu,“ segir Ingimar og bætir við að verkefnið hafi verið afar umfangsmikið og hafi náð til fjölda starfsmanna Applicon á Norðurlöndunum, svo sem í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×