Viðskipti innlent

Öllum skipverjum á Guðmundi VE sagt upp

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Uppsagnirnar koma til vegna áforma Ísfélags Vestmannaeyja um að selja skipið.
Uppsagnirnar koma til vegna áforma Ísfélags Vestmannaeyja um að selja skipið. vísir/óskar
Öllum skipverjum í áhöfn Guðmundar VE hefur verið sagt upp störfum. Það er RÚV sem greinir frá. Um 18 til 20 manns eru um borð hverju sinni og eru alls 38 sjómenn um þær stöður.

Uppsagnirnar koma til vegna áforma Ísfélags Vestmannaeyja um að selja skipið, auk fjölveiðiskipsins Þorsteins ÞH, úr landi. Fyrirhugað er að félag í eigu Ísfélagsins, Royal Greenland og annarra aðila eignist skipin og geri þau út. Verða skipin gerð út á Grænlandsmið eftir að þau hafa verið afhent nýjum eigendum síðar á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×