Viðskipti innlent

Icesave-málið hefur ekki áhrif á lánshæfismat

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viðleitni Breta og Hollendinga hefur ekki áhrif á lánshæfismatið.
Viðleitni Breta og Hollendinga hefur ekki áhrif á lánshæfismatið.
Viðleitni Breta og Hollendinga til að auka endurheimtur vegna Icesave hafa ekki áhrif á lánshæfi Ríkissjóðs Íslands.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá matsfyrirtækið Moody´s.

Í álitinu kemur fram að lögsókn yfirvalda í Bretlandi og Hollandi fyrir hönd innstæðutryggingarsjóða þeirra  á hendur Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi hafi engin áhrif á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands.

Vísað er í úrskurð EFTA-dómstólsins frá árinu 2013 um að engin greiðsluskylda vegna Icesave-reikninga hvíli á íslenska ríkinu.

Hollenski seðlabankinn og breski innstæðusjóðurinn krefjast þess að TIF greiði að fullu lágmarkstryggingu eða um 21.000 evrur.

Krafa breska innstæðusjóðsins nemur 452 milljörðum og krafa hollenska seðlabankans 104 milljörðum.

Í tilkynningunni frá Moody´s kemur fram að Bretar og Hollendingar hafi þegar endurheimt 60% af kröfum sínum gegn þrotabúi Landsbankans vegna Icesave.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×