Viðskipti innlent

Meniga í hópi þeirra bestu á Fintech50

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Fólkið á bak við Meniga.is.
Fólkið á bak við Meniga.is.
Meniga hlaut þá viðurkenningu að vera valið eitt af 50 leiðandi fyrirtækjum á sviði fjármálatækni í Evrópu á Fintech50 2014 ráðstefnunni sem haldin var 23.janúar. Meniga er þannig leiðandi í Evrópu í þróun og sölu heimilsbókhalds-hugbúnaðar í Evrópu.

„Við erum mjög þakklát að vera með í þessum frábæra hópi fyrirtæka í Fintech50 2014. Þetta er mikil viðurkenning og hvatning fyrir okkur hjá Meniga. Við munum leggja okkur fram að þjóna okkar viðskiptavinum sem aldrei fyrr og taka virkan þátt í þeirri byltingu sem á sér stað tækniframförum í fjármálageiranum. Við viljum hjálpa einstaklingum að hafa betri yfirsýn á sínum fjármálum og bjóða upplýsandi og gagnlega þjónustu sem nær út fyrir hefðbundinn ramma bankaþjónustu í dag,“ segir Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga.

Meniga var eina fyrirtækið með heimilsbókhalds-hugbúnað sem komst á þennan lista. Fyrirtækin 50 voru valin úr 280 umsóknum en í dómnefnd voru virtir sérfræðingar á sviði fjármálatækni.

Frá stofnun 2009, hefur Meniga aðstoðað fjármálafyrirtæki í tíu löndum styrkja tengsl þeirra við sína viðskiptavini sína og veitt þeim dýrmætan hugbúnað, ráðgjöf og þjónustu. Þar á meðal eru bankar sem eru leiðandi í nýrri tækni á heimsvísu. Einn þeirra er New mBank, sem einnig var valið sem hluti af Fintech50 2014. 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×