Viðskipti innlent

Spá því að verðbólgan fari undir verðbólgumarkmiðið í febrúar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Spá því að verðbólgan fara undir 2,5% í fyrsta sinn frá því í mars 2011.
Spá því að verðbólgan fara undir 2,5% í fyrsta sinn frá því í mars 2011. visir/vilhelm
Hagstofa Íslands birtir febrúarmælingu vísitölu neysluverðs fimmtudaginn 27. febrúar. Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitalan hækki um 0,7% milli mánaða.

Í febrúar á síðasta ári hækkaði verðlag mun meira milli mánaða, eða um 1,6%, og því mun verðbólgan lækka þrátt fyrir hækkun vegna grunnáhrifa.

Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan lækka um 0,9 prósentustig, úr 3,1% í 2,2% og verðbólgan fara undir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í fyrsta sinn frá því í mars 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×