Attentus sinnir mannauðsmálum fyrir HB Granda Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 19. febrúar 2014 12:28 Guðríður Sigurðardóttir frá Attentus, Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda og Elva Gylfadóttir, starfsþróunarstjóri HB Granda. Vísir/Attentus
HB Grandi hf. og Attentus – mannauður og ráðgjöf hafa gert með sér samning um að sérfræðingar Attentus hafi heildarumsjón með starfmannamálum HB Granda í samvinnu við starfsþróunarstjóra félagsins. Í tilkynningu frá Attentus segir að markmiðið með samningnum sé að HB Grandi fái bestu mögulega þjónustu og ráðgjöf í stjórnun mannauðsmála. „HB Grandi hf. er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi og hefur skipað sér í fremstu röð fyrirtækja á sínu sviði. Hjá fyrirtækinu vinna um 700 starfsmenn til sjós og lands. Lögð er rík áhersla á háþróaða tækni við veiðar og vinnslu og stöðuga þróun framleiðslunnar. Með samstarfinu við Attentus vill HB Grandi styrkja og efla stjórnun starfsmannamála sem mikilvægan þátt í að efla og viðhalda góðum árangri fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni.Úthýsing mannauðsmála hefur færst í vöxt hjá fyrirtækjum hér á landi eins og annarstaðar í heiminum undanfarin ár.„Þessi leið gefur fyrirtækjum tækifæri til að draga úr kostnaði en á sama tíma efla faglega mannauðsþjónustu, stuðning og ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk. Rannsóknir á árangri fyrirtækja sem valið hafa þessa leið hafa meðal annars sýnt fram á meiri stöðugleika, fjárhagslegan ávinning og aukna framleiðni þegar þessi leið er valin,“ segir í tilkynningu Attentus.Attentus veitir ráðgjöf um allt sem snýr að rekstri og stjórnun út frá áherslum mannauðsstjórnunar. Árið 2012 fékk fyrirtækið hvatningarverðlaun FKA fyrir að eiga meðal annars frumkvæði að því að bjóða fyrirtækjum og stofnunum lausnina „mannauðsstjóri til leigu.”Hjá Attentus starfa nú átta starfsmenn, sex ráðgjafar og tveir sérfræðingar, sem sinna verkefnum á þessu sviði.
Mest lesið Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira