Orðrómur um samruna Apple og Tesla Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. febrúar 2014 13:44 Tesla S hefur selst í 20 eintökum hér á landi. VISIR/GVA
Verð hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla motors hækkuðu um 3% á mörkuðum í gær eftir að orðrómur komst á kreik um mögulegan samruna fyrirtækisins og Apple. Þetta var í fyrsta sinn sem verð bréfanna fer yfir 200 dollara. Áhugi fjárfesta kviknaði eftir sögusagnir af fundi Elons Musk, annars stofnanda Tesla motors og Adrians Perica formanns samrunadeildar Apple. Fundurinn fór fram í upphafi árs 2013 en kom fyrst upp á yfirborðið í vikunni í umfjöllun San Francisco Chronicle þar sem vísað var til ónafngreindra heimildamanna. Apple hefur þó ekki verið þekkt fyrir að reiða fram háar fjárhæðir í fjárfestingum sínum ólíkt keppinautum þeirra hjá Google og Microsoft. Markaðsvirði Tesla stendur nú í rúmlega 25 milljörðum bandaríkjadala, ríflega 2800 milljörðum íslenskra króna og því er ljóst að Apple þarf að bregða út af vananum ef til samrunans á að koma. Líklegra verður þó að teljast að samstarf milli fyrirtækjanna sé í kortunum frekar en samruni. Musk tilkynnti fyrr í ár að Tesla hygðist byggja stærsta rafhlöðuver heims með aðkomu annarra fyrirtækja og hefur verið gert ráð fyrir því að Apple sé eitt þeirra. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Financial review.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira