Viðskipti innlent

Björn lætur af störfum hjá Arion banka

Elimar Hauksson skrifar
Björn, til vinstri, ásamt Jóhannesi sem mun taki við starfi hans í útibúinu á Hellu.
Björn, til vinstri, ásamt Jóhannesi sem mun taki við starfi hans í útibúinu á Hellu. Mynd/DFS fréttablað Suðurlands
Björn Sigurðsson hefur látið af störfum sem bankastjóri Arion banka á Hellu eftir 26 ára starf í útibúinu. Björn hóf störf fyrir Búnaðarbanka Íslands í Austurstræti 1.nóvember árið 1965 og hefur því starfað fyrir bankann og forvera hans í meira en 48 ár.

Björn sem hefur lengsta starfsaldur allra starfsmanna Arion banka segir í samtali við Vísi að hann hverfi sáttur frá störfum og ætli nú að njóta lífsins. Hann segir síðustu árin hjá bankanum hafa verið viðburðarík.

„Þau hafa verið atburðarík. Ég met það svoleiðis að þetta sé hins vegar allt að komast í samt horf aftur og Arion banki sé afar sterkur banki. þannig að ég ég kveð mjög sáttur,“ sagði Björn í samtali við Vísi nú í kvöld.

Við starfi Björns tekur Jóhannes Hr. Símonarson sem hefur starfað bæði sem aðstoðarútibússtjóri á Hellu en var nú síðast viðskiptastjóri bankans á Suðurlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×