Viðskipti innlent

Þurfa um 640 milljarða í erlendum gjaldeyri til að borga af lánum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Gjaldeyrisþörfin er rúmlega 76 milljarðar króna á þessu ári, 150 milljarðar árið 2016 og tæplega 132 milljarðar árið 2018.
Gjaldeyrisþörfin er rúmlega 76 milljarðar króna á þessu ári, 150 milljarðar árið 2016 og tæplega 132 milljarðar árið 2018. vísir/valli
Fyrirtæki og sveitarfélög með ríkisábyrgð þurfa um 640 milljarða króna í erlendum gjaldeyri á næstu fjórum árum til að borga af lánum og greiða skuldir við föllnu bankana. Stærstu og þyngstu afborganirnar eru vegna gamla Landsbankans. RÚV greinir frá.

Gjaldeyrisþörfin er rúmlega 76 milljarðar króna á þessu ári, 150 milljarðar árið 2016 og tæplega 132 milljarðar árið 2018.

Stærsti hluti afborgana er vegna skulda við föllnu bankana, þar skipta mestu afborgunarferlar vegna gamla Landsbankans eða 300 milljarðar króna. Þá er þess getið að enn sé ósamið um greiðslur vegna skuldabréfs á milli nýja og gamla Landsbankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×