Viðskipti innlent

Framkvæmdastjóri Applicon A/S segir starfi sínu lausu

Haraldur Guðmundsson skrifar
Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni.
Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni.
Karl Peter Vilandt, framkvæmdastjóri Applicon A/S, dótturfélags Nýherja, hefur sagt starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum, að því er fram kemur í tilkynningu Nýherja.

Þar segir að gert sé ráð fyrir að eftirmaður hans verði ráðinn á næstunni en þangað til mun Karl Peter sinna starfi framkvæmdastjóra sem fyrr. Á fjórða tug manns starfa hjá AppliconA/S að þjónustu og ráðgjöf í tengslum við viðskiptahugnúnaðarlausnir SAP. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×