Nýr íslenskur samskiptamiðill Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2014 14:07 Jón von Tetzchner. mynd/samsett
Von er á nýjum samskiptamiðli frá hugbúnaðarfyrirtækinu Vivaldi en stofnandi fyrirtækisins mun vera hinn íslensk ættaði Jón von Tetzchner. Um er að ræða samskiptamiðil sem verður svo gott sem laus við auglýsingar og persónunjósnir frá yfirvöldum. Jón von Tetzchner segir í viðtali við Reuters að miðillinn verði mjög öruggur og ekki möguleiki á að notfæra sér persónuupplýsingar um notendur til að birta auglýsingar um áhugamál notenda. „Við munum leggja megin áherslu á að markaðssetja samskiptamiðilinn fyrir svo kallaða tölvunörda, en það er ljóst að þeir leggja mikið upp úr öryggi og persónunjósnum,“ segir Tetzchner í samtali við Reuters. Jón von Tetzchner er meðal stofnanda norska hugbúnaðar- og tæknifyrirtækisins Opera Software en hann hefur verið áberandi í íslensku efnahagslífi undanfarin misseri. Hann hætti störfum hjá Opera árið 2011. „Fólk er yfirleitt meðvitað um persónunjósnir og öryggi sitt á veraldarvefnum. Fyrirtækið hefur nú þegar sett á laggirnar nýja vefsíðu Vivaldi.net þar sem notendur geta skráð sig fyrir nýju tölvupóstfangi, deilt myndum og spjallað saman sín á milli. Fyrirtækið vonast til þess að geta sett samskiptamiðilinn í loftið þann 1. mars næstkomandi og er markmiðið að milljónir manna nýti sér þjónustuna á fyrstu mánuðunum. „Að mínu mati þarf að vera lögð meiri áhersla á öryggi almennings á internetinu. Það getur aftur á móti enginn lofað því að NSA láti þennan miðil alveg í friði en við verðum án efa öruggasti samskiptamiðillinn á markaðnum. Íslendingar leggja mikið upp úr því að halda persónunjósnum í algjöru lágmarki og er það ein af aðal ástæðunum fyrir því að fyrirtækið er staðsett á Íslandi.“
Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira