Viðskipti innlent

Öll norsku skipin leita nú að loðnunni

Öll tuttugu og fimm norsku loðnuskipi sem verið hafa í höfnum undanfarna daga vegna óveðurs og þess, að loðnan finnst ekki, eru haldin út til leitar austur af landinu og sömuleiðis nokkur íslensk loðnuskip.

Engar fréttir hafa hinsvegar borist um veiði, en norsku skipin eiga að tilkynna strax um aflabrögð. Veður fer nú skánandi á miðunum.

Norsku sjómennirnir eru að komast í tímaþröng því veiðiheimildir þeirra hér við land gilda til 15. febrúar, eða í hálfa aðra viku héðan í frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×