Viðskipti innlent

Höluðu inn 92 milljónum á núðlusölu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Noodle Station gengur vel.
Noodle Station gengur vel.
Veitingastaðurinn Noodle Station, staðsettur á Skólavörðustíg, seldi núðlur fyrir um 92 milljónir króna á síðasta ári.

Þetta er þónokkur aukning á tekjum fyrirtækisins, árið áður voru þær um 57 milljónir.

Veitingastaðurinn var opnaður árið 2011 og hefur gengið vel. Eignir fyrirtækisins, í árslok 2012, voru 38,9 milljónir en skuldir 17,7. Helstu eignir fyrirtækisins er fasteign sem er metin á 13 milljónir og handbært fé fyrir svipaða upphæð.

Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×