Viðskipti innlent

Stjórnarmenn í lífeyrissjóðum VM grípi til aðgerða

Haraldur Guðmundsson skrifar
Guðmundur Ragnarsson, formaður VM.
Guðmundur Ragnarsson, formaður VM. Vísir/Anton
Stjórn Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) hefur óskað eftir því að stjórnarmenn í lífeyrissjóðum félagsmanna VM sjái til þess að sjóðirnir selji hlutabréf sín í fyrirtækjum sem bjóða stjórnendum „ofurlaun, bónusa og fríðindi." 

Þetta kemur fram í fréttatilkynninu VM.

„Óábyrg vinnubrögð mega ekki verða til þess að vekja upp andúð á lífeyrissjóðakerfinu eða stjórnum þess. Þvert á móti eiga stjórnirnar að vera mjög virkar og stoppa allt sem ofbýður almennri skynsemi. Stjórnarmenn eiga að beita áhrifum sínum í að tryggja siðferði í þeim fyrirtækjum sem sjóðirnir eiga í og marka um leið framtíðar fyrirkomulag þessara mála á fyrirtækja- og fjármálamarkaði," segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×