Viðskipti innlent

Stóru félögin hafa ekki lækkað verð á olíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu.
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu. Vísir/Anton Brink
Atlantsolía lækkaði verð á díselolíu fyrir sólarhring, en stóru olíufélögin hafa ekki lækkað verð í kjölfarið. „Stóru félögin hafa ekki treyst sér að fylgja okkur eftir í lækkun á díselolíu. Við lækkuðum um tvær krónur fyrir rétt rúmum sólahring,“ segir Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu.

„Að jafnaði fylgja þeir okkur eftir alveg eins og skugginn.“ Séu heimasíður olífyrirtækja, eins og hjá Skeljungi, Olís og N1, skoðaðar sést að þær hafa ekki lækkað verðið.

Orkan, sem er í eigu Skeljungs lækkaði verðið á eftir Atlantsolíu í 239,10 krónur. Sem er tuttugu aurum ódýrara en hjá Atlantsolíu. „Það hafa þeir gert frá því við hófum rekstur, en þeir hafa næstum aldrei verið á undan að lækka verðið,“ segir Hugi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×