Viðskipti innlent

Efla endurnýjar samning við Statnett

Haraldur Guðmundsson skrifar
Starfsfólk Eflu verkfræðistofu.
Starfsfólk Eflu verkfræðistofu. Vísir/Vilhelm
Efla verkfræðistofa endurnýjaði nú um áramótin verksamning við norska ríkisfyrirtækið Statnett í tengslum við framkvæmdir við 150 kílómetra, 420 kílóvatta háspennulínu sem Statnett hyggst byggja í Norður-Noregi.

Verkfræðistofan hefur samkvæmt fréttatilkynningu Eflu unnið að undirbúningi og hönnun vegna línunnar undanfarin ár.

„Undanfarin tvö ár hefur Efla aðstoðað Statnett við áætlanagerð ásamt hönnun á möstrum og undirstöðum. Einnig var Efla með jarðfræði- og jarðtæknilegt mat á línuleiðinni með tilliti til grundunaraðstæðna ásamt borunum í útvöldum mastrastæðum.. Auk þess hefur EFLA komið að áætlanagerð fyrir framkvæmdina, m.a. í samráði við hreindýraræktendur á svæðinu,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×