Viðskipti innlent

Þrjú bakarí og tvær fiskbúðir sektaðar

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Þegar skoðununum var fylgt eftir kom í ljós að þrjú bakarí og tvær fiskbúðir höfðu ekki gert fullnægjandi lagfæringar á verðmerkingum sínum.
Þegar skoðununum var fylgt eftir kom í ljós að þrjú bakarí og tvær fiskbúðir höfðu ekki gert fullnægjandi lagfæringar á verðmerkingum sínum. vísir/gva
Neytendastofa hefur sektað þrjú bakarí og tvær fiskbúðir vegna ófullnægjandi verðmerkinga.

Stofnunin fór í heimsóknir í bakarí og fiskbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að skoða verðmerkingar og fengu þau fyrirtæki sem stofnunin gerði athugasemdir við fyrirmæli að lagfæra verðmerkingar sínar svo ekki þyrfti að koma til frekari aðgerða.

Þegar skoðununum var fylgt eftir kom í ljós að þrjú bakarí og tvær fiskbúðir höfðu ekki gert fullnægjandi lagfæringar á verðmerkingum sínum. Því hefur Neytendastofa nú lagt 50 þúsund króna stjórnvaldssekt á bakaríin Björnsbakarí Austurströnd, Bæjarbakarí og Okkar bakarí, og á fiskbúðirnar Gallerý fisk og Fiskbúðina Höfðabakka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×