Viðskipti innlent

Fimm nýir meðeigendur í eigendahóp Deloitte

Stefán Árni Pálsson skrifar
5 nýir meðeigendur í eigendahóp Deloitte.
5 nýir meðeigendur í eigendahóp Deloitte. mynd/samsett
Nýlega bættust 5 nýir meðeigendur í eigendahóp Deloitte. Alls eru því 39 eigendur að Deloitte. Nýju meðeigendurnir eru:

Jóhann Geir Harðarson.  Jóhann starfar á endurskoðunarsviði Deloitte. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði af fjármálasviði árið 2001 og með Cand. Oecon gráðu af endurskoðunarsviði árið 2005 og fékk löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 2009.  

Jóhann hóf störf hjá Deloitte árið 2000 og hefur starfað þar síðan að undanskildu ári þar sem hann starfaði hjá Glitni / Íslandsbanka.

Jóhann hefur víðtæka reynslu af endurskoðun.

Guðmundur Ásgeirsson.  Guðmundur  hóf störf hjá Deloitte árið 2006.  Hann útskrifaðist með meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá HÍ 2010 og fékk löggildingu til endurskoðunarstarfa ári síðar.

Guðmundur hefur stýrt starfsstöð Deloitte í Vestmannaeyjum sl. 2 ár.

Emil Viðar Eyþórsson.  Emil  starfar í Fjármálaráðgjöf Deloitte.  Hann útskrifaðist með Cand. oecon gráðu frá Háskóla Íslands árið 2005  og fékk löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 2011.  

Emil hóf störf hjá Deloitte árið 2002, fyrst við endurskoðun og uppgjör en síðar í Fjármálaráðgjöf Deloitte, og hefur starfað þar síðan að undanskildu ári þar sem hann starfaði hjá Icelandic Group.

Ingvi Björn Bergmann.  Ingvi starfar á endurskoðunarsviði Deloitte.  Hann útskrifaðist með Cand. oecon gráðu frá Háskóla Íslands árið 2006 og fékk löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 2009.  

Ingvi hóf störf hjá Deloitte árið 2004.  Hann starfaði í 2 ár hjá Deloitte í Kaupmannahöfn og hefur sérhæft  sig í endurskoðun og ráðgjöf á sviði fjármála, reikningskila og skattamála fyrir skráð alþjóðleg félög.  Ingvi Björn hefur auk þess verið stundakennari við Háskóla Íslands í reikningsskilum.

Signý Magnúsdóttir.  Signý starfar á endurskoðunarsviði Deloitte og hóf störf hjá Deloitte árið 2006.  Signý útskrifaðist með meistaragráðu í endurskoðun og reikningsskilum árið 2008 og hlaut löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 2011.

Signý situr í stjórn félags kvenna í endurskoðun og hefur auk þess verið stundakennari við Háskóla Íslands í reikningsskilum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×