Viðskipti innlent

Lækkun verðbólgu gefur fögur fyrirheit

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA.
„Þetta eru vonandi tíðindi fyrir þá sem höfnuðu samningnum vegna þess að þeir voru með efasemdir um að þetta myndi nást,“ segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ um lækkun á verðbólgu í janúar. Ársverðbólgan lækkaði um 1,1 prósentustig milli mánaða í janúar, úr 4,2% í 3,1%.

„Markmið þessara kjarasamninga sem við gerðum var auðvitað að taka glímu við verðbólguna. Í baklandi okkar voru efasemdir um að það tækist og auðvitað hjá okkur sjálfum líka. En það er ljóst að krónan hefur verið að vinna með okkur undanfarið ár og það er í sjálfu sér ekkert verðbólgufóður í pípunum, þannig að það að semja um lægri launabreytingar myndi þýða að atvinnurekendur þyrftu ekki að ýta neinu út í verðið,“ segir Gylfi.

Lækkunin í janúar var meiri en opinberar spár gerðu ráð fyrir, en þær lágu á bilinu 0,3 til 0,5 prósentustig. Í janúar hafa útsölur jafnan mest áhrif, fatnaður og skór lækkuðu um 10,8% og húsgögn og heimilisbúnaður um 2,8%. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 14,6% og eldsneyti um 2,5%. Helstu hækkunarvaldar voru húsnæðisliður og hækkun gjaldskráa ýmissa fyrirtækja og stofnana.

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir mikið tækifæri til að ná verðbólgu niður fyrir markmið Seðlabankans og halda henni þar í framhaldinu.

„Það ætti að hjálpa okkur með þá kjarasamninga sem voru felldir þar sem þetta eykur tiltrú á þá vegferð sem við vorum á. Við getum náð því að byggja upp kaupmátt á lægri nafnhækkunum launa en áður og þannig náð verðbólgu talsvert niður. Sem og að ná vöxtum niður sem skilar mestum ávinningi fyrir bæði heimili og fyrirtæki,“ segir Þorsteinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×