Keyptu vörur fyrir 1,2 milljarða í desember Stefán Árni Pálsson skrifar 31. janúar 2014 15:44 Erlendir ferðamenn greiddu 1,2 milljarða króna með greiðslukortum í verslunum í desember.
Erlendir ferðamenn greiddu 1,2 milljarða króna með greiðslukortum í verslunum hér á landi í desember síðastliðin sem er 13% aukning frá árinu áður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Þá eyddu þeir 784 milljónum króna í skipulagðar skoðanaferðir og ýmsa sérsniðna ferðaþjónustu sem er aukning um 68% frá desember árið áður. Þá greiddu erlendir ferðamenn með kortum sínum veitingar á veitingahúsum fyrir 565 milljónum króna í desember sem er 47% aukning frá árinu áður. Alls nam greiðslukortavelta erlendra ferðamanna 4,5 milljörðum krónu í desember sem er 32% aukning frá árinu áður. Þessi aukning er vegna aukins fjölda ferðamanna en ekki vegna þessa þess að hver ferðamaður eyði meira en árið áður. Hver erlendur ferðamaður greiddi að jafnaði 107 þúsúnd krónur með greiðslukorti sínu hér á landi í desember síðastliðnum en 120 þúsúnd krónur í desember 2012. Athyglisvert er að greina einstaka útgjaldaliði erlendra ferðamanna í desember: Þannig virðast erlendir ferðamenn aka um á bílaleigubílum í mun meira mæli en áður í desember. Aukning í kortaveltu til bílaleiga var 52% á milli ára; 214 milljónir króna í desember síðastliðnum og 141 milljónir króna í desember árið áður. Erlend kortavelta í verslunum var mest í fataverslun, 224 milljónir króna, en mest aukning á milli ára var í dagvöruverslun, 21%, og nam 196 milljónir króna. Árið 2013 greiddu erlendir ferðamenn 78,4 milljarða króna með greiðslukortum og jókst heildarkortaveltan um 24,4% frá árinu áður. Hver ferðamaður greiddi að jafnaði 97.400 kr. með greiðslukorti árið 2012 en á síðasta ári nam þessi upphæð 100.400. Aukning á hvern ferðamann nam því 3% á milli ára, sem er heldur minna en verðlagshækkanir, þannig að raunminnkun var í erlendri kortaveltu á hvern erlendan ferðamann sem hingað kom árið 2013.
Mest lesið Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin SÝN verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf