Viðskipti innlent

Botninn dottinn úr loðnuveiðunum

Gissur Sigurðsson skrifar
Vísir/Óskar Friðriksson
Botninn er dottinn úr loðnuveiðunum og eru nokkur skip hætt að leita fyrir sér og farin í land. Nánast ekkert hefur veiðst síðastliðna þrjá sólarhringa og það litla sem hefur fengist, er smáloðna, en óvissa ríkir um sölumöguleika á henni, að sögn skipstjórnarmanna, sem enn eru á miðunum.

Nokkur skip hófu skipulega leilt á stóru svæði norður af Langanesi í fyrrakvöld og leituðu alla nóttina, en án árangurs. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er nú að koma á svæðið til leitar. Eitt norskt loðnuskip er komið á miðin og hefur það ekki heldur fengið neitt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×