Viðskipti innlent

Advania sér um upplýsingatæknina fyrir Akureyrarbæ

Haraldur Guðmundsson skrifar
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrarbæjar og Eyjólfur Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri hjá Advania við undirritun samningsins.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrarbæjar og Eyjólfur Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri hjá Advania við undirritun samningsins. Mynd/Þorgeir Baldursson.
Advania og Akureyrarbær hafa undirritað samning um að fyrirtækið taki að sér rekstur og framþróun á upplýsingatæknikerfum bæjarins og stofnana hans til næstu fimm ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Advania.

Þar segir að markmið samningsins sé að auka ávinning og hagræði Akureyrarbæjar og íbúa af notkun upplýsingatækni.

„Samningurinn felur í sér að Advania tekur að sér rekstur og hýsingu á miðlægum kerfum, ásamt því að sjá um gagnageymslur bæjarins, gagnaafritun, eftirlit með kerfum, netsamband og Internetþjónustu. Jafnframt mun Advania þjónusta 1.200 starfsmenn bæjarins við tölvunotkun þeirra," segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×