Fjallaði um viðskiptatækifæri á norðurslóðum Haraldur Guðmundsson skrifar 21. janúar 2014 10:40 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hélt í morgun opnunarerindi á morgunverðarfundi um viðskiptatækifæri á norðurslóðum á hótel Reykjavík Natura. Þar fjallaði ráðherra um þróunina á norðurslóðum og þau efnahagslegu tækifæri sem Ísland stendur frammi fyrir samhliða auknum möguleikum til auðlindanýtingar og opnun siglingaleiða. Forsætisráðuneytið greinir frá þessu í fréttatilkynningu. Þar segir að Sigmundur hafi meðal annars nefnt olíuleit á Drekasvæðinu og uppbyggingu þjónustu á Íslandi, ekki síst gagnvart hafnsækinni starfsemi. „Ráðherra ræddi einnig mikilvægi sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum og sérstöðu Íslands er lýtur að endurnýjanlegum orkugjöfum. Forsætisráðherra fjallaði jafnframt um þær áskoranir sem fylgdu auknum efnahagslegum umsvifum á norðurslóðum, ekki síst að því er varðar umhverfis- og öryggismál. Þá áréttaði ráðherra mikilvægi heildstæðrar stefnu í málefnum norðurslóða og greindi frá starfi nýskipaðrar Ráðherranefndar um málefni norðurslóða í því sambandi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Norðurslóðaviðskiptaráðið og PwC stóðu að fundinum og meðal annarra ræðumanna var dr. Michael Byers, prófessor í alþjóðalögum og stjórnmálum og sérfræðingur í málefnum norðurslóða.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira