Fjórtán markmið samfélagsábyrgðar gerð opinber Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 21. janúar 2014 17:15 Árið 2011 setti Landsvirkjun sér stefnu um samfélagslega ábyrgð. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun hefur birt markmið fyrirtækisins fyrir árið 2014 í tengslum við stefnu um samfélagsábyrgð og opnar nýtt vefsvæði samfélagsábyrgðar á www.landsvirkjun.is. Samfélagsábyrgð hefur verið sérstakt forgangsverkefni hjá Landsvirkjun árið 2013 þar sem unnið hefur verið að innleiðingu á stefnu fyrirtækisins um samfélagsábyrgð. Afraksturinn er nú gerður opinber með birtingu fjórtán markmiða sem fyrirtækið ætlar að uppfylla á árinu 2014. Markmiðasetningin og afrakstur hennar verður framvegis hluti af árlegri upplýsingagjöf fyrirtækisins og er aðgengileg öllum hagsmunaaðilum á vef fyrirtækisins. Markmiðin fjórtán fyrir árið 2014 eru: · Innleiða UN Global Compact í starfsemi Landsvirkjunar · Greina fjölnýtingartækifæri jarðvarma og aukna nýtingu vatnsafls · Halda í það minnsta fimm opna fundi með hagsmunaaðilum · Auka hlutfall kvenkyns stjórnenda hjá fyrirtækinu · Stuðla að nýsköpun í orkugeiranum með stuðningi við orkusprota · Gera heildstæða aðgerðaáætlun um bindingu og losun gróðurhúsalofttegunda · Koma á samgöngustefnu og þróa áfram orkuskipti í samgöngum · Greiða arð til eigenda · Starfsemi Landsvirkjunar sé slysalaus · Semja og innleiða stefnu um heilindi í viðskiptum · Stuðla að þekkingarsköpun í gegnum Orkurannsóknasjóð Landsvirkjunar · Innleiða eigendastefnu í starfsemina · Gera rannsóknarskýrslur aðgengilegar á www.gegnir.is · Innleiða siðareglur fyrir birgja og þjónustuaðila Markmiðin eru skilgreind innan sex áherslusviða samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun en þau eru: ábyrgir starfs- og stjórnarhættir, umhverfismál, ábyrgð í virðiskeðjunni, samfélagið, mannauðurinn og miðlun þekkingar. Árleg markmiðasetning eykur gagnsæi Árið 2011 setti Landsvirkjun sér stefnu um samfélagslega ábyrgð. Hún er að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins. „Með árlegri markmiðasetningu sem við birtum opinberlega, viljum við tryggja að stefnumörkun okkar um samfélagsábyrgð sé framfylgt. Markmiðin eru öllum opin og geta hagsmunaaðilar fylgst með því hvernig okkur tekst að uppfylla þau á árinu 2014,“ segir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar. Þessi nýbreytni í upplýsingagjöf miðar að því að gera starfsemi fyrirtækisins gagnsærri og aðgengilegri fyrir hagsmunaaðila Landsvirkjunar. Markmið samfélagsábyrgðar er að hámarka jákvæð áhrif fyrirtækisins á samfélag og umhverfi og lágmarka neikvæð áhrif. Í tilkynningu frá Landsvirkjuns egir að með þessu móti stígi fyrirtækið jafnframt skref í að jafna áherslur umhverfis, samfélags og efnahags í starfseminni.
Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira