Arion banki býður nýjan höfuðstólstryggðan fjárfestingarkost Stefán Árni Pálsson skrifar 22. janúar 2014 10:55 Innlendum fjárfestum býðst nú val um fjárfestingu á innlánaformi með ávöxtun hlutabréfamarkaðarins. Mynd/Pjetur
Í fyrsta sinn frá árinu 2008 býðst innlendum fjárfestum val um fjárfestingu á innlánaformi með ávöxtun hlutabréfamarkaðarins án þess að hætta sé á að höfuðstóll innlánsins skerðist en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Arion-banka. Um er að ræða svonefnt sérsniðið innlán en með þessari nýju fjárfestingarleið er Arion banki að svara kalli viðskiptavina eftir fjölbreyttari fjárfestingarkostum. Sérsniðin innlán eru samsett úr bundnu innláni annars vegar og ávöxtunarþætti sem kemur í stað hefðbundinna vaxta hins vegar. Ávöxtunarþátturinn tengist gjarnan ákveðnum markaði svo sem hlutabréfamarkaði eða skuldabréfamarkaði. Algengt er að ávöxtunarþáttur sérsniðinna innlána ákvarðist af árangri tiltekinnar vísitölu sem einkennir viðkomandi markað. Sérsniðin innlán Arion banka fylgja ávöxtun íslensku OMXI6CAP vísitölunnar sem skráð er í Kauphöll Íslands og eru bundin í sex mánuði. Lágmarksinnlán er fimm milljónir króna og höfuðstólstrygging getur verið 100%. Þannig þurfa fjárfestar ekki að hætta höfuðstólnum þó árangur vísitölu eða verðbréfa reynist lakari en vænst var. Einnig geta fjárfestar valið lægri höfuðstólstryggingu og átt þar með kost á hærri ávöxtun en sem nemur ávöxtun íslensku OMXI6CAP vísitölunnar á tímabilinu.
Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími úr forstjórastólnum og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira