Viðskipti innlent

Tvær verkfræðistofur undir hatt EFLU

Haraldur Guðmundsson skrifar
EFLA verkfræðistofa starfar nú í öllum landshlutum á Íslandi.
EFLA verkfræðistofa starfar nú í öllum landshlutum á Íslandi. Mynd/Efla
Verkfræðistofa Norðurlands og Verkfræðistofa Suðurlands voru um áramótin settar undir hatt EFLU verkfræðistofu, en stofurnar hafa verið í fullri eigu fyrirtækisins undanfarin ár. Í fréttatilkynningu frá EFLU segir að samstarf fyrirtækjanna hafi skilað mjög góðum árangri og verið öllum fyrirtækjunum til hagsbóta.

„Nú verða stofurnar svæðisskrifstofur EFLU og munu þær heita EFLA Norðurland og EFLA Suðurland, með fjölbreytt bakland EFLU í þekkingu og þjónustu. Auk þess er á landsbyggðinni EFLA Austurland, sem hefur verið með starfsemi á Reyðarfirði síðan árið 1997. Engar breytingar verða á heimilisfangi, símanúmerum eða í hópi starfsfólks EFLU Norðurlands og EFLU Suðurlands. Áfram verður lögð höfuðáherslu á öfluga starfsemi og góða þjónustu á svæðunum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×