Metfjöldi olíuleyfa gefinn út í Noregi Kristján Már Unnarsson skrifar 22. janúar 2014 11:54 Tord Lien, olíu- og orkumálaráðherra Noregs. Mynd/Reynir Jóhannesson.
Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Tord Lien, tilkynnti í gær um að 65 nýjum sérleyfum til 48 olíufélaga hefði verið úthlutað til olíuleitar og vinnslu á norska landgrunninu. Aldrei fyrr í nærri hálfrar aldar sögu norska olíuævintýrisins hefur svo mörgum sérleyfum verið útdeilt til svo margra félaga. Flest leyfin voru gefin út til leitar í Norðursjó, eða 38 talsins, í Noregshafi voru gefin út 19 leyfi og í Barentshafi 8 leyfi. Athyglisvert er að færeyska félagið Faroe Petroleum fékk flest leyfin, tíu talsins, jafnmörg og norska félagið Statoil og breska félagið Centrica fengu. Annað færeyskt félag, Atlantic Petroleum, fékk tvö leyfi. Íslenska félagið Eykon Energy var í hópi umsækjenda en náði ekki að ljúka vottunarferli til starfa í Noregi. Samstarfsfélög Eykons fengu hins vegar úthlutað leyfi og er gert ráð fyrir að Eykon gangi inn í þau, þegar vottun er fengin, að sögn Gunnlaugs Jónssonar, framkvæmdastjóra Eykons. Tord Lien lýsir mikilli ánægju með þessa úthlutun, enda sé hún nýtt met, bæði í fjölda leyfa og fjölda félaga. Stigið sé stórt skref að frekari könnun þeirra svæða sem mest eru rannsökuð í lögsögu Noregs. Þetta sýni að norska ríkisstjórnin standi við loforð sín, stefnan sé að áfram verði haldið uppi háu framleiðslustigi í norska olíuiðnaðinum. Leyfisúthlutunin sætir gagnrýni frá SV, systurflokki Vinstri grænna í Noregi. Talsmaður flokksins segir að ríkisstjórn Ernu Solberg gangi í þveröfuga átt við það sem rauðgræna ríkisstjórnin gerði, að gera norskt samfélag minna háð olíunni. Þessi aukning gangi jafnframt gegn sjónarmiðum loftslagsverndar og norsks efnahagslífs.Kort sem sýnir leyfin má sjá á vef olíu- og orkumálaráðuneytis Noregs.
Tengdar fréttir Eykon í hópi 50 umsækjenda um sérleyfi í lögsögu Noregs Eykon Energy er í hópi fimmtíu olíufélaga sem sóttu um sérleyfi í nýjasta útboði á olíusvæðum Norðmanna. 15. september 2013 13:18 Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Eykon í hópi 50 umsækjenda um sérleyfi í lögsögu Noregs Eykon Energy er í hópi fimmtíu olíufélaga sem sóttu um sérleyfi í nýjasta útboði á olíusvæðum Norðmanna. 15. september 2013 13:18