Viðskipti innlent

Tryggvi Þór verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Dr. Tryggvi Þór Herbertsson
Dr. Tryggvi Þór Herbertsson Vísir/Stefán
Dr. Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið ráðinn verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðalána.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra skipaði þann 8. janúar síðastliðinn sérstaka verkefnisstjórn sem ætlað er að hafa yfirumsjón með undirbúningi og framkvæmd verkefnisins og mun Tryggvi Þór vinna með verkefnisstjórninni.

Dr. Tryggvi Þór er með doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla. Hann var áður forstjóri Askar Capital, dótturfélags Milestone og var efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×