Viðskipti innlent

S&P breytir horfum á Íslandi úr neikvæðum í stöðugar

Vísir/AFP
Matsfyrirtækið Standard & Poor's breytti nú í mogun lánshæfishorfum Íslands, úr neikvæðum í stöðugar. Lánshæfiseinkunn fyrirtækisins fyrir Ísland er þó enn sú sama og hún hefur verið; BBB-/A3.

Í skýringum sínum segir fyrirtækið að enn sé óvissa uppi um efnahagsbata landsins og hvernig ganga muni að aflétta gjaldeyrishöftunum. Þá er tekið fram að tillögur ríkisstjórnarinnar um skuldaleiðréttingu almennings muni líklega ekki leiða til aukinna skulda fyrir þjóðarbúið, að því gefnu að verkefnið verði fjármagnað með auknum skatttekjum.

Þó vara Standard & Poor's við því að enn sé óvíst með hvort aukin skattheimta ríkisins á kröfuhafa föllnu bankanna, muni standast fyrir dómstólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×