Viðskipti innlent

Norðmenn leita að loðnunni en Íslendingar sitja heima

Ekkert bólar á loðnunni.
Ekkert bólar á loðnunni. Vísir/Hari
Norðmenn sjá nú alfarið um loðnuleit norðaustur af landinu þar sem íslensku loðnuskipin og hafrannsóknaskipið, sem skráð er til loðnuleitar, ligga við bryggjur í höfnum norðaustanlands.

Norðmenn virðast skipta með sér leitinni, því aðeins sex af þeim skipum, sem komin eru hingað, eru nú á leitarsvæðinu, en hin eru í höfn og bíða frétta af miðunum, og munu svo leysa hin af hólmi.

Eins og við greindum frá í fréttum fyrr í vikunni hefur Hafrannsóknastofnun ekki fjármagn til að standa fyrir umfangsmikilli loðnuleit, heldur er miðað að því að loðnuskipin sjálf finni loðnuna og þá komi Hafró á vettvang og mæli gönguna.

Enn hefur aðeins verið gefinn út 80 þúsund tonna byrjunarkvóti þar sem Hafrannsóknastofnun hefur ekki getað mælt göngurnar og munu íslensku útgerðirnar vilja treina sér hann þa til loðnan verður hrognafull og mun verðmeiri en hún er núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×