Viðskipti innlent

Ætla að sniðganga fyrirtæki sem boða verðhækkanir

Haraldur Guðmundsson skrifar
Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst mikið á síðustu misserum.
Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst mikið á síðustu misserum. Mynd/Vilhelm
Félagsmenn Verslunarmannafélags Suðurlands (VMS) og félagar annarra stéttafélaga landsins voru í gærkvöldi hvattir af almennum félagsfundi VMS til að sniðganga þau fyrirtæki sem hafa nú í upphafi árs boðað hækkanir á vöru og þjónustu. 

Þá fordæmdi fundurinn hækkanir ríkisins á gjaldskrá heilbrigðisþjónustu, sem tóku gildi nú um áramótin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gils Einarssyni, formanni VMS. 

„Fundurinn vekur einnig athygli á því að gengi íslensku krónunnar hefur styrkst mikið á síðustu misserum, sem gefur enn frekar tilefni til engra hækkana, miklu fremur  lækkun á vörum og þjónustu.

Það hefur aldrei verið brýnna en nú að þjóðin sameinist um að verðbólga lækki og verði aldrei meiri en 2,5% í lok árs 2014," segir Gils í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×